Hlíðarhorn er nýr og glæsilegur reitur á frábærum stað í miðborg Reykjavíkur, sunnan við Miklubraut í grennd við Landspítalann. 195 íbúðir af öllum stærðum og gerðum verða afhentar frá árslokum 2024 og sala er þegar hafin.

Nýtt hverfi í hjarta borgarinnar

Undanfarin ár hefur miðborg Reykjavíkur tekið að opnast til suðurs. Uppbygging á svæði Háskóla Íslands teygir sig út í Vatnsmýrina vestanmegin og nýtt þjóðarsjúkrahús rís við jaðar hennar til norðurs. Fjölbreytt og ört vaxandi hverfi með íbúðum, þjónustu og Háskólanum í Reykjavík teygir sig frá Hringbraut og Skógarhlíð, meðfram Öskjuhlíð og alla leið út í Nauthólsvík.

Miðsvæðis með strönd og skóg

Hlíðarhorn er nýjasti reiturinn í 102 Reykjavík og tengir saman Hlíðahverfið og Þingholtin annars vegar en nýju byggðina meðfram Öskjuhlíð hins vegar. Svæðið liggur frábærlega við öllum samgöngum og er í þægilegu göngufæri við mörg af bestu svæðum borgarinnar til útivistar og leikja.

Frábær aðstaða fyrir íþróttir og útivist

Umhverfisvænar lausnir

Barnvænt hverfi með fyrsta flokks skóla og frístundastarf

Fjölbreytt atvinnusvæði

Hlíðarhorn er í þægilegri nálægð við langstærsta atvinnusvæði landsins á sviði heilbrigðisþjónustu og rannsókna, menntunar, fjármála og ferðaþjónustu. Á sama tíma er hverfið rólegt íbúðahverfi með sólrík, skjólsæl og örugg leiksvæði fyrir börnin.

Bjartar og vandaðar íbúðir

Allar íbúðir eru með svalir, þaksvalir eða sólpall í inngarði og áhersla er lögð á að veita dagsbirtu um stofur og alrými. Vandaðar innréttingar og tæki eru í öllum íbúðum við afhendingu.

2024

Hlíðarhorn er hannað af ASK arkitektum en þróað og byggt af S8 ehf. Framkvæmdir hófust vorið 2022 og hafa gengið skv. áætlun. Fyrstu íbúðir verða afhentar í lok árs 2024.

2025

Íbúðirnar eru afhentar tilbúnar til innflutnings. Þær eru málaðar í ljósum lit og innréttaðar í 7 mismunandi útfærslum með öllum gólfefnum og flísum. Öll eldhústæki eru frá Siemens, innbyggð og sérvalin fyrir hverja útfærslu. Blöndunartæki eru frá ítalska framleiðandanum Mariner og á eldhúsborðum og í votrýmum eru vönduð steinefni og brenndar leirflísar. Innréttingar eru frá GKS/Nobilia.

Allar íbúðir eru loftræstar með sjálfstæðu Blauberg-loftræstikerfi frá Þýskalandi. Ljósleiðari er við rafmagnstöflu og allar íbúðir eru með mynddyrasíma. Tengingar fyrir þvottavél og barkalausan þurrkara eru á baðherbergjum þeirra íbúða sem hafa ekki sér þvottaherbergi.

Hluti íbúða í Hlíðarhorni er sérstaklega ætlaður íbúum sem hafa náð 50 ára aldri.